Dagur íslenska fjár­hundsins

Dagur íslenska fjárhundsins

ann 18. júlí verður haldið upp á Dag íslenska fjárhundsins á Árbæjarsafni.

Hægt verður að heilsa upp á hunda og eigendur þeirra sem glaðir svara öllum spurningum um hinn íslenska fjárhund. Hundarnir eru ljúfir og spakir og óhætt er að klappa þeim með leyfi eigenda. Aðeins hundar sem taka þátt í kynningunni munu fá aðgang að safninu. Í haga er jafnframt að finna hesta, kindur, lömb og geitur. Landnámshænurnar vappa frjálsar um safnið. Safnið er opið frá kl. 10 –17 en dagskráin hefst kl. 14. Ókeypis aðgangur fyrir börn, öryrkja og menningarkortshafa. Árbæjarsafn er hluti af Borgarsögusafni, eitt safn á fimm frábærum stöðum. Öll velkomin!