Dagur íslenska fjár­hundsins

Dagur íslenska fjárhundsins

Laugardaginn 18. júlí kl. 13-16, verður haldið upp á Dag íslenska fjárhundsins á Árbæjarsafni. Hægt verður að heilsa upp á hunda og eigendur þeirra sem glaðir svara öllum spurningum um hinn íslenska fjárhund. Hundarnir eru ljúfir og spakir og óhætt er að klappa þeim með leyfi eigenda.

Dagskrá: 13.00 - Lesið fyrir hund 13.30 - Rallý hlýðni 14.00 - Sögur úr sveitinni 14.00 - Dýralæknahornið 14.30 - Lyktarprufa 15.00 - Rallý hlýðni 16.00 - Lyktarprufa ---Aðeins hundar sem taka þátt í kynningunni munu fá aðgang að safninu--- Safnið er opið frá kl. 10 –17 en dagskráin hefst kl. 13. Öll velkomin! Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur). Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins. Öll bílastæði eru ókeypis.