Danskvöld með Þjóðdansafélaginu á Árbæjarsafni

Hefur þú áhuga á þjóðdönsum? Fimmtudaginn 30. apríl kl. 19-21:30 verður þjóðdansakvöld í Lækjargötu á Árbæjarsafni. Atli Freyr Hjaltason frá Þjóðdansafélagi Reykjavíkur mun kynna íslenska þjóðdansa fyrir gestum, kenna grunnsporin og kynna félagið. Ókeypis inn og öll velkomin!
Þjóðdansar eru alls konar og það er engin þörf á að koma með félaga - þó það sé alltaf kostur að hafa vini með. Komdu og lærðu vikivaka, ræla, valsa og margt fleira! Grunnspor verða kennd frá 19:15-19:45 Dansarnir verða svo kenndir frá 20:00-21:30 Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur). Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins. Öll bílastæði ókeypis.