Dýrin í sveitinni - Föndursmiðja í vetrarfríinu *Skráning*

Hvaða dýr eru í sveitinni? Verið velkomin í föndursmiðju með húsdýraþema á Árbæjarsafni í vetrarfríinu, 19. febrúar kl. 13-15. Frítt fyrir fullorðna í fylgd með börnum allt vetrarfríið. --- Það er skráning í smiðjuna og það er miðað við 20 börn ásamt fylgdarliði. Vinsamlegast sendið póst á hopar.borgarsogusafn@reykjavik.is til að skrá ykkur --- Í smiðjunni er endurnýting í lykilhlutverki þar sem aðalföndurefnið föndrað verður með eggjabakka ásamt öðru efni. Smiðjan fer fram í húsi sem nefnist Lækjargata og er á torgi safnsins. Á safnsvæðinu er einnig að finna húsið Líkn, sem er fjölnota fræðsluhús. Á efri hæð eru tvær teikni/föndursmiðjur og spilaherbergi, einnig er rólegt rými til að slaka á og glugga í bækur. Á neðri hæðinni er að finna QR kóða fyrir ýmsa skemmtilega leiki á svæðinu.
Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins. Öll bílastæði eru ókeypis.