Ertu að læra íslensku?

Safnfræðsla Borgarsögusafns býður upp á leiðsögn um Landnámssýninguna í Aðalstræti fyrir fólk sem er að læra íslensku. Leiðsögnin verður laugardaginn 8. mars kl. 14:00-15:00.
Katleen Abbeel segir frá á auðskilinni íslensku. Leiðsögnin er ókeypis og er fyrir fólk sem er að læra íslensku, bæði fyrir byrjendur og þau sem kunna meira, börn og fullorðna. Í Aðalstræti 10 og 16 er sýning um hvernig Reykjavík hefur breyst frá landnámi til dagsins í dag. Leiðsögnin byrjar í Aðalstræti 16 þar sem er rúst af húsi frá 10. öld og sýning um líf fyrstu íbúa Reykjavíkur. Leiðsögnin heldur áfram í elsta húsi í miðbæ Reykjavíkur, Aðalstræti 10. Þar er sýning um þróun Reykjavíkur til dagsins í dag. Katleen Abbeel talar íslensku sem annað mál. Hún er leiðsögumaður, þýðandi og íslenskukennari. Safnið er góður staður til að æfa íslensku. Þessi orð verða notuð í leiðsögninni: - torfhús - rúst - rostungur - iðnvæðing - músagildra - latína Aðgengi er gott í Aðalstræti. Athugið þó að það er lítil lýsing inni í sýningarsal hjá rústinni og þar er gólfið ójafnt. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næstu stoppustöðvar heita MR og Ráðhúsið (2-5 mín. gangur).