Ertu að læra íslensku - Leiðsögn á auðskilinni íslensku

Laugardaginn 9. maí fögnum við afmæli Landnámssýningarinnar og bjóðum upp á leiðsögn fyrir fólk sem er að læra íslensku. Katleen Abbeel sér um leiðsögnina og segir frá á auðskilinni íslensku. Leiðsögnin er kl. 14:00-15:00 og er hluti af afmælisdagskrá Landnámssýningarinnar. Sýningin er 20 vetra, sem þýðir 20 ára, en í gamla daga var aldur talinn í vetrum en ekki árum.
Leiðsögnin byrjar á Landnámssýningunni, Aðalstræti 16. Þar er rúst af húsi frá 10. öld og sýning um líf fyrstu íbúa Reykjavíkur. Leiðsögnin heldur áfram í elsta húsi í miðbæ Reykjavíkur, Aðalstræti 10. Þar er sýning um þróun Reykjavíkur til dagsins í dag. Leiðsögnin er ókeypis og er fyrir fólk sem er að læra íslensku, bæði fyrir byrjendur og þau sem kunna meira. Safnið er góður staður til að æfa íslensku. Aðgengi er gott í Aðalstræti. Athugið samt að það er lítil lýsing inni í sýningarsal hjá rústinni og þar er gólfið ójafnt. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næstu stoppustöðvar heita MR og Ráðhúsið (2-5 mín. gangur). Nánari upplýsingar um sýninguna: https://borgarsogusafn.is/syningar/adalstraeti