Ertu að læra íslensku? - Leið­sögn á auðskil­inni íslensku

Ertu að læra íslensku? - Leiðsögn á auðskilinni íslensku

Ertu að læra íslensku? Borgarsögusafn býður upp á leiðsögn um Ljósmyndasafnið fyrir fólk sem er að læra íslensku. Leiðsögnin verður laugardaginn 13. júní kl. 14:00-15:00. Katleen Abbeel segir frá á auðskilinni íslensku.

Leiðsögnin verður um sýninguna Hjartaþræðir: nándin í hversdeginum eftir Þórdísi Erlu Ágústsdóttur. Orðið hversdagur þýðir venjulegur dagur. Á sýningunni eru myndir af fólki heima hjá sér og á stöðum sem þeim finnst mikilvægir. Á myndunum eru lítil augnablik sem segja stærri sögu. Leiðsögnin er ókeypis og er fyrir fólk sem er að læra íslensku, bæði fyrir byrjendur og þau sem kunna meira. Safnið er góður staður til að æfa íslensku. Nánari upplýsingar um sýninguna: https://borgarsogusafn.is/syningar/t-hordis-erla-agustsdottir-hjartathraedir-nandin-i-hversdeginum Aðgengi er gott á Ljósmyndasafninu og leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið Strætisvagnar: Næstu stoppistöðvar heita Hafnarhús, Lækjartorg, Ráðhúsið (2-5 mín. gangur).