Ertu að læra íslensku? - Leiðsögn á auðskilinni íslensku

Ertu að læra íslensku? Borgarsögusafn býður upp á leiðsögn um Ljósmyndasafnið fyrir fólk sem er að læra íslensku. Leiðsögnin verður laugardaginn 10. október kl. 14:00-15:00. Katleen Abbeel sér um leiðsögnina og segir frá á auðskilinni íslensku.
Leiðsögnin verður um sýninguna "Á vettvangi" með myndum eftir Ólaf K. Magnússon. Hann var blaðaljósmyndari og byrjaði að vinna hjá Morgunblaðinu árið 1947. Á sýningunni eru myndir frá 1947-1975 sem sýna miðbæ Reykjavíkur eins og hann var þá. Leiðsögnin er ókeypis og er fyrir fólk sem er að læra íslensku, bæði fyrir byrjendur og þau sem kunna meira. Safnið er góður staður til að æfa íslensku. Nánari upplýsingar um sýninguna: https://borgarsogusafn.is/syningar/a-vettvangi-olafur-k-magnusson-bladaljosmyndari Aðgengi er gott á Ljósmyndasafninu og leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næstu stoppistöðvar heita Hafnarhús, Lækjartorg, Ráðhúsið (2-5 mín. gangur). ** Næsti viðburður á auðskilinni íslensku verður í Aðalstræti 14. nóvember **