Ertu að læra íslensku? - Leiðsögn á auðskilinni íslensku

Ertu að læra íslensku? Borgarsögusafn býður upp á leiðsögn um Aðalstræti 10 og 16 fyrir fólk sem er að læra íslensku. Leiðsögnin verður laugardaginn 14. nóvember kl. 14:00-15:00. Katleen Abbeel sér um leiðsögnina og segir frá á auðskilinni íslensku.
Leiðsögnin byrjar á Landnámssýningunni, Aðalstræti 16. Þar er rúst af húsi frá 10. öld og sýning um líf fyrstu íbúa Reykjavíkur. Leiðsögnin heldur áfram í elsta húsi í miðbæ Reykjavíkur, Aðalstræti 10. Þar er sýning um þróun Reykjavíkur til dagsins í dag. Leiðsögnin er ókeypis og er fyrir fólk sem er að læra íslensku, bæði fyrir byrjendur og þau sem kunna meira. Safnið er góður staður til að æfa íslensku. Aðgengi er gott í Aðalstræti. Athugið samt að það er lítil lýsing inni í sýningarsal hjá rústinni og þar er gólfið ójafnt. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næstu stoppustöðvar heita MR og Ráðhúsið (2-5 mín. gangur). Nánari upplýsingar um sýninguna: https://borgarsogusafn.is/adalstraeti