Ertu að læra íslensku? - Sumar­dag­urinn fyrsti

Ertu að læra íslensku? - Sumardagurinn fyrsti

Fimmtudaginn 23. apríl fögnum við sumardeginum fyrsta á Árbæjarsafni og bjóðum upp á leiðsögn fyrir fólk sem er að læra íslensku. Danijela Zivojinovic sér um leiðsögnina og segir frá á auðskilinni íslensku.

Leiðsögnin byrjar kl. 14:00 og er hluti af skemmtilegri dagskrá á sumardaginn fyrsta. Á Árbæjarsafni er hægt að kynnast sögu Reykjavíkur og lífinu í gamla daga í einstöku umhverfi. Leiðsögnin er ókeypis og er fyrir fólk sem er að læra íslensku, bæði fyrir byrjendur og þau sem kunna meira. Safnið er góður staður til að æfa íslensku. Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur). Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins. Öll bílastæði ókeypis. Nánari upplýsingar um Árbæjarsafn: https://borgarsogusafn.is/arbaejarsafn