Fánasmiðja á Alþjóðlegum degi gegn fordómum í garð hinsegin fólks

Verið velkomin í fánasmiðju á Árbæjarsafni á sunnudaginn þann 17. maí kl. 13-15 í tilefni af Alþjóðlegum degi gegn fordómum í garð hinsegin fólks og Alþjóðlega safnadeginum. Ókeypis inn og öll velkomin!
Fánar eru sameiningartákn samfélaga – og nú ætlum við að búa til okkar eigin! Við bjóðum öll velkomin að föndra fána sem endurspegla hugmyndir, tilfinningar og fjölbreytileika. Pappír, lím, litir og auðvitað prik verða á staðnum. Ef veður leyfir má gjarnan stinga fánunum í beðið á torgi Árbæjarsafns. Borgarsögusafn Reykjavíkur hlaut regnbogavottun árið 2022. https://reykjavik.is/regnbogavottun-reykjavikur Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur). Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins. Öll bílastæði ókeypis.