Ferðalag til fortíðar - Sýning á Barna­menn­ing­ar­hátíð

Ferðalag til fortíðar - Sýning á Barnamenningarhátíð

Nemendur í 4. bekk í Ísaksskóla unnu að verkefninu "Ferðalag til fortíðar" í samstarfi við safnið í vetur. Afrakstur vinnu nemenda verður settur upp í formi sýningar í Bryggjusal Sjóminjasafnsins, sem stendur frá 21. apríl og til 3. maí. Öll velkomin.

Nemendum var skipt í hópa af handahófi og settu sig í hlutverk norskra landkönnuða sem leita að nýjum búsetustað. Þeir finna sér eyju til búsetu og stofna eigið samfélag. Nemendur ákveða starfsskiptingu innan hópsins, s.s. veiðimenn, bændur og ræktendur og skilgreina styrkleika og hlutverk allra íbúa samfélagsins. Lögð er áhersla á mikilvægi fjölbreytileika, samheldni og ábyrgðar í samfélagsgerð. Í verkefninu hönnuðu nemendur eigin þjóðfána og fjölskylduskjaldarmerki sem endurspegla gildi samfélagsins. Um er að ræða þverfaglegt verkefni þar sem unnið verður með námsefni úr íslensku, stærðfræði, samfélagsfræði, náttúrufræði og lífsleikni. Markmið verkefnisins er að efla skilning nemenda á uppbyggingu samfélags, auk þess sem lögð er sérstök áhersla á samkennd, umburðarlyndi, þolinmæði, samvinnu og virðingu fyrir fjölbreytileika. Aðgengi er gott á Sjóminjasafninu. Safnið er á tveimur hæðum og það er lyfta er á milli hæða. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagn, leið 14, stoppar nálægt safninu. Ókeypis bílastæði.