Finndu sjávardýrin! - QR-kóðaleikur á Sjómannadaginn

Getur þú fundið sjávardýrin? Verið velkomin í QR-kóðaleik á Sjóminjasafninu í Reykjavík á Sjómannadaginn, 7. júní kl. 10-17. Frítt inn!
Finndu sjávardýrin! er léttur og skemmtilegur QR-kóðaleikur sem leiðir ykkur um sýninguna Fiskur & fólk - sjósókn í 150 ár. Markmiðið er að finna ýmis konar sjávardýr sem hafa falið sig víðsvegar um sýninguna. Um leið og leitað er að sjávardýrunum má fræðast um sögu fiskveiða á Íslandi, frá því árabátar viku fyrir stórskipaútgerð á síðustu áratugum 19. aldar og allt fram yfir aldamótin 2000. Aðgengi fyrir hreyfihamlaða er gott á Sjóminjasafninu, sérstaklega við inngang Grandagarðsmegin. Lyfta er á milli hæða.