Finndu sjáv­ar­dýrin! Ratleikur í vetr­ar­fríinu

Finndu sjávardýrin! Ratleikur í vetrarfríinu

Getur þú fundið sjávardýrin? Verið velkomin í ratleik á Sjóminjasafninu í Reykjavík í vetrarfríinu, 19.-22. febrúar kl. 10-17. Frítt inn fyrir fullorðna í fylgd með börnum allt vetrarfríið! Finndu sjávardýrin! er léttur og skemmtilegur ratleikur sem leiðir ykkur um sýninguna Fiskur & fólk - sjósókn í 150 ár. Markmiðið er að finna ýmis konar sjávardýr sem hafa falið sig víðsvegar um sýninguna. Um leið og leitað er að sjávardýrunum má fræðast um sögu fiskveiða á Íslandi, frá því árabátar viku fyrir stórskipaútgerð á síðustu áratugum 19. aldar og allt fram yfir aldamótin 2000.

Aðgengi fyrir hreyfihamlaða er gott á Sjóminjasafninu, sérstaklega við inngang Grandagarðsmegin. Lyfta er á milli hæða.