Fjöl­skyld­u­stund í tilefni af sumar­deg­inum fyrsta

Fjölskyldustund í tilefni af sumardeginum fyrsta

Í tilefni af sumardeginum fyrsta höfum við breytt Bryggjusalnum í notalegt og skapandi fjölskyldurými fullt af skemmtilegum spilum og föndri. Þar geta börn og fullorðnir átt saman góða stund í leik og list.

Við ætlum að prófa nokkur spennandi ný spil og bjóðum gestum einnig að setjast niður við teikniborðið, lita, teikna og jafnvel tefla ef stemningin býður upp á það. Komið og njótið notalegrar og skapandi stundar saman á safninu – öll eru hjartanlega velkomin!