Fókus á Menningarnótt

Verið velkomin á sýningu Fókus – Félags áhugaljósmyndara á Ljósmyndasafni Reykjavíkur á Menningarnótt, laugardaginn 22. ágúst kl. 16-21. Ókeypis inn og öll velkomin! Ljósmyndararnir á bakvið sýninguna verða á svæðinu til að spjalla um sýninguna og félagið.
Götumyndir er fimmta sýningin í sýningaröð FÓKUS – Félags áhugaljósmyndara í Skotinu árið 2026. „Vegir liggja til allra átta, á þeim verða skil;… ”. Þetta textabrot, úr ljóði Indriða G. Þorsteinssonar, gæti átt við götuljósmyndun. Um er að ræða vítt hugtak sem oft fangar hversdaglega atburði og athafnir í daglegu lífi ókunnugs fólks. Faðir götuljósmyndunar, Henri Cartier-Bresson, lýsti henni þannig í viðtali: „Það er þetta skapandi brot úr sekúndu þegar þú tekur mynd. Augu þín sjá samsetningu eða tjáningu sem lífið býður upp á og þú verður að vita með innsæi hvenær á að smella af á myndavélinni. Það er augnablikið þegar ljósmyndarinn er skapandi.” Sýnendur eru: • Einar Valur Einarsson • Einar Örn Jónsson • Ingunn Mjöll Sigurðardóttir • Jón Bjarnason • Stefán Hrafn Jónsson • Þóroddur Steinn Skaptason Sýningin er hluti af sýningaröð FÓKUS í Skotinu árið 2026. Alls verða sjö sýningar haldnar yfir árið þar sem 47 ljósmyndarar sýna verk sín. Jafnframt verður á skjá myndasyrpa frá Fókus félögum sem mun rúlla stöðugt allt kvöldið. Viðburðurinn er hluti af dagskrá Borgarsögusafns á Menningarnótt. Aðgengi er gott á Ljósmyndasafninu. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið.