Fornar rætur Árbæjar - 10 ára afmæl­is­veisla

Fornar rætur Árbæjar - 10 ára afmælisveisla

Verið velkomin í 10 ára afmælisveislu fornleifarannsóknarninnar Fornar rætur Árbæjar sunnudaginn þann 28. júní kl. 13-16. Öll velkomin!

Dagskrá: 13:00 Umfjöllun um tilurð rannsóknarinnar 13:30 Fornleifaleiðsögn um uppgraftarsvæðin með Sólrúnu Ingu Traustadóttur, stjórnanda rannsóknarinnar 14:30-16:00 Fornleifafræðingar segja frá og sýna gripi sem hafa fundist, sem og tæki og tól sem hafa nýst við uppgröftinn 13:00-16:00 Myndasýning frá síðustu 10 árum uppgraftarins 13:00-16:00 Fjölskylduratleikur með fornleifaívafi 13:00-16:00 Teikni- og litasmiðja Fornar rætur Árbæjar er fornleifarannsókn sem fer fram á bæjarhóli Árbæjar á Árbæjarsafni. Fornleifarannsóknin hófst árið 2016 og er markmið hennar að svara spurningum sem tengjast upphafi og þróun byggðar í Árbæ og af hverju hann var valinn til búsetu í fyrstu; Var það vegna laxins í Elliðaánum? Var Árbær upphaflega sel frá öðrum bæ, Gufunesi, Breiðholti eða Vík? Settist fólk að í Árbæ strax á 9. öld og byggði sér skála? Niðurstöður rannsóknarinnar munu varpa ljósi á þróun samfélagsins frá fyrstu öldum byggðar á svæðinu. Meira um Fornar rætur: https://borgarsogusafn.is/fornar-raetur-arbaejar Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur). Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins. Öll bílastæði eru ókeypis.