Fornbíladagurinn
![Fornbíladagurinn](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fhvirfill.reykjavik.is%2Fmedia%2Fimages%2FAR58451.f1e3b454.fill-1920x980-c100.format-jpeg.jpg&w=3840&q=75)
Sunnudaginn 7. júlí kl 13 verður boðið upp á hina árvissu og vinsælu fornbílasýningu á Árbæjarsafni.
Fornbílaklúbbur Íslands sýnir ýmsa merka bíla í eigu félagsmanna á safnsvæðinu. Félagsmenn verða á staðnum og spjalla við gesti. Dagskráin stendur frá klukkan 13-16 en safnið er opið 10-17. Ókeypis aðgangur fyrir börn, öryrkja og menningarkortshafa. Öll velkomin!