Frítt inn á Land­náms­sýn­inguna á Menn­ing­arnótt

Frítt inn á Landnámssýninguna á Menningarnótt

Í tilefni af Menningarnótt verður ókeypis inn á Landnámssýninguna Aðalstræti 10 og 16 kl. 10-20 þann 23. ágúst.

Í Aðalstræti 10 og 16 geturðu séð hvernig Reykjavík þróaðist frá landnámi til dagsins í dag. Söguþráðurinn teygir sig neðanjarðar úr Aðalstræti 16 þar sem er rúst skála frá 10. öld í yfir í elsta hús Kvosarinnar, Aðalstræti 10 og sýnir þróun Reykjavíkur frá býli til borgar. Eldri hluti sýningarinnar í Aðalstræti 16 byggir á niðurstöðum vísindalegra fornleifarannsókna um það sem fornleifar í Reykjavík geta sagt okkur um líf og störf þeirra sem fyrst settust hér að. Ljósi er varpað á líf og tilveru fyrstu íbúa Reykjavíkur og tengsl þeirra við umhverfið í nýju landi í gegnum margmiðlunartækni og túlkun á fornminjum. Þungamiðjan er rúst skála frá 10. öld sem fannst árið 2001 og er varðveitt á sínum upphaflega stað og gefur hugmynd um umhverfi Reykjavíkur eins og það var við landnám. Norðan við skálann fannst veggjarbútur sem er ennþá eldri, eða síðan fyrir 871 og er hann meðal elstu mannvistarleifa sem fundist hafa á Íslandi. Sýningin teygir sig svo áfram neðanjarðar frá Aðalstræti 16 yfir í elsta hús Kvosarinnar, sem er Aðalstræti 10 og heldur áfram til samtímans. Þættir úr sögu Reykjavíkur eru dregnir fram og við sjáum daglegt líf íbúanna og tíðarandann í aldanna rás. Sýningin vekur upp spurningar og áhuga - og kemur á óvart með fjölbreyttri miðlun og upplifun þar sem mikilvægi Aðalstrætis sem sögumiðja Reykjavíkur er undirstrikað enn frekar. Verið velkomin á Landnámssýninguna á Menningarnótt! Aðgengi er gott í Aðalstræti. Athugið þó að það er fremur lítil lýsing inni í sýningarsal hjá skálarústinni og þar er gólfið ójafnt á köflum. Leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið.