Frítt inn á Ljós­mynda­safnið á Safn­anótt

Frítt inn á Ljósmyndasafnið á Safnanótt

Verið velkomin á Ljósmyndasafn Reykjavíkur á Safnanótt, föstudaginn 6. febrúar kl. 18-22. Ókeypis inn og öll velkomin! Sofandi risar er sýning eftir Kristján Maack sem fjallar um hina örlagaríku tíma sem við lifum á. Í náttúrunni búa sofandi risar sem smátt og smátt eru að vakna til lífsins. Djúpt í iðrum náttúrunnar stendur tíminn kyrr svo árþúsundum saman og varðveitir þar tímann og kjarnann í náttúrunni. Um þúsaldir geymist vatnið og súrefnið og allar öreindir landsins á hinum fullkomna stað, undir þungu fargi sjálfs síns til þess að varðveita upprunann. Í myrkrinu og kuldanum varðveitist kjarninn best, tíminn hefur stöðvast í milljónir ára og bíður þess sem verða vill. Massinn og fargið hefur áhrif á allt í kringum sig, nærir og kæfir allt umhverfið sitt með eiginleikum sínum. Íslenskir jöklar eru að hverfa. Ef skyggnst er innst inn í kjarna jökuls þá má þar finna allt sem var, andrúmsloft, vatn, ryk, flóru, og allar hinar minnstu öreindir alheimsins. Þetta er allt geymt í frystigeymslu náttúrunnar. Hreyfing nefnist fyrsta sýning félaga úr Fókus – Félagi áhugaljósmyndara sem mun taka yfir sýningarrýmið SKOTIÐ árið 2026. Orðið „hreyfing“ má túlka í ljósmynd á mismunandi vegu, til dæmis með því að frysta hreyfingu í mynd, fylgja hreyfingu eftir með myndavélinni, eða taka myndir af ýmsum „hreyfingum“ samfélagsins, svo sem verkalýðshreyfingu eða mótmælahreyfingu. Sýnendur eru: Dagþór Haraldsson Geir Gunnlaugsson Ósk Ebenesersdóttir Ólafur Magnús Håkansson Sveinn Aðalsteinsson Þorsteinn Friðriksson

Aðgengi er gott á Ljósmyndasafninu og leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið.