Guðs­þjón­usta í Árbæj­arsafns­kirkju

Guðsþjónusta í Árbæjarsafnskirkju

Verið velkomin í Guðsþjónustu í Árbæjarsafnskirkju sunnudaginn 6. september kl. 14–15. Séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson þjónar fyrir altari.

Aðgengi: Flestir gangstígar á safnsvæðinu eru malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Samgöngur og bílastæði: Næsta stoppistöð Strætó heitir Árbæjarsafn (1 mínúta gangandi). Aðrar nálægar stoppistöðvar eru Laxakvísl og Fagribær (5–6 mínútna gangur). Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins. Öll bílastæði eru gjaldfrjáls.