Harm­ón­íku­hátíð og heyannir

Harmóníkuhátíð og heyannir

Harmóníkuhátíð Reykjavíkur verður venju samkvæmt haldin í samstarfi við Árbæjarsafn, sunnudaginn 13. júlí og stendur frá kl. 13 til 16.

Á hátíðinni, sem haldin er í minningu stofnanda hennar Karls Jónatanssonar harmóníkufrumkvöðuls, koma fram margir af landsins bestu og þekktustu harmóníkuleikurum í fallegu umhverfi safnsins. Þetta er í 27. skiptið sem Harmóníkuhátíðin er haldin og hefur þetta oftar en ekki verið einn af vinsælli viðburðum Árbæjarsafns á hverju sumri. Á safninu geta gestir, ungir sem aldnir jafnframt fylgst með og tekið virkan þátt í heyönnum eins og þær tíðkuðust fyrir daga heyvinnuvéla, með þeim fyrirvara að veður haldist þurrt. Um aldir höfðu Íslendingar engin önnur verkfæri en ljá, orf og hrífu til að afla vetrarforðans. Víða var heyjað upp á gamla mátann fram yfir miðja síðustu öld, en nú eru gömlu handbrögðin sjaldséð í sveitum landsins. Missið ekki af þessu tækifæri til að komast í kynni við orf, ljá og hrífur og að taka þannig virkan þátt í heyönnum á Árbæjarsafni. Athugið að heyannir geta fallið niður ef veður er óhagstætt en þá er í hið minnsta alltaf hægt að skemmta sér við fallega harmóníkutóna og kíkja í kaffi á kaffihús safnsins í Dillonshúsi. Dagskráin stendur frá klukkan 13-16 en safnið er opið 10-17. Ókeypis aðgangur fyrir börn, öryrkja og menningarkortshafa. Öll velkomin!