Harmonikuhátíð og heyannir

Sunnudaginn 12. júlí, verður hin árlega Harmonikuhátíð Reykjavíkur haldin í samstarfi við Árbæjarsafn og hefst dagskráin kl. 13:00 og stendur til kl. 16.00.
Á hátíðinni, sem haldin er í minningu stofnanda hennar, Karls Jónatanssonar harmonikufrumkvöðuls, koma fram margir af landsins bestu og þekktustu harmonikuleikurum í fallegu umhverfi safnsins. Þetta er 28. árið sem Harmonikuhátíðin er haldin og hefur þetta oftar en ekki verið vinsælasti viðburður Árbæjarsafns á hverju sumri. Á safninu geta gestir, ungir sem aldnir jafnframt fylgst með og tekið virkan þátt í heyönnum eins og þær tíðkuðust fyrir daga heyvinnuvéla, með þeim fyrirvara að veður haldist þurrt. Um aldir höfðu Íslendingar engin önnur verkfæri en ljá, orf og hrífu til að afla vetrarforðans. Víða var heyjað upp á gamla mátann fram yfir miðja síðustu öld, en nú eru gömlu handbrögðin sjaldséð í sveitum landsins. Missið ekki af þessu tækifæri til að komast í kynni við orf, ljá og hrífur og að taka þannig virkan þátt í heyönnum á Árbæjarsafni 🌾 Athugið að heyannir geta fallið niður ef veður er óhagstætt en þá er í hið minnsta alltaf hægt að skemmta sér við fallega harmóníkutóna og kíkja í kaffi á kaffihús safnsins í Dillonshúsi. Dagskráin stendur frá klukkan 13-16 en safnið er opið 10-17. Ókeypis aðgangur fyrir börn, öryrkja og menningarkortshafa. Öll velkomin! Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur). Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins. Öll bílastæði eru ókeypis.