Heimsókn frá konunglegu rannsóknarskipi á Menningarnótt - RRS Sir David Attenborough

Í tilefni af Menningarnótt, þann 22. ágúst kl. 10:00-20:00, standa Breska heimskautarannsóknastofnunin (British Antarctic Survey), Breska sendiráðið og Sjóminjasafnið í Reykjavík saman að móttöku konunglega rannsóknarskipsins RRS Sir David Attenborough til Íslands. Skipið kemur við í Reykjavík á leið sinni heim úr rannsóknarleiðangri þar sem bráðnun jökla á Grænlandi var skoðuð. Komið við á safninu og skoðið sérstaka pop-up sýningu þar sem hægt verður að fræðast um skipið, hitta áhöfnina og vísindamennina um borð og heyra hvers vegna rannsóknir á Grænlandi skipta okkur öll máli. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin.
Dagskrá: 13:00-16:00 Spjallið við áhöfn og vísindamenn skipsins 14:00-14:30 Vísindaspjall: „Jökulhetta Grænlands bráðnar hraðar en nokkru sinni fyrr - hvað þýðir það fyrir hafstrauma í Atlantshafi og veðurfar í Evrópu?“ - Alison Cook, nýdoktor í heimskautatengdri landupplýsingagreiningu (Polar Geospatial Analysis) við skosku hafrannsóknarstofnunina (Scottish Association for Marine Science) 10:00-20:00 Litasmiðja 10:00-20:00 Pop-up sýningin opin Viðburðurinn er hluti af fjölbreyttri dagskrá Borgarsögusafns á Menningarnótt. Aðgengi er gott á Sjóminjasafninu og leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið.