Heyannir

Heyannir

<p data-block-key="lbhv6">Sunnudaginn 21. júlí geta gestir, ungir sem aldnir, sem sækja Árbæjarsafn heim fylgst með og tekið virkan þátt í heyönnum eins og þær tíðkuðust fyrir daga heyvinnuvéla, með þeim fyrirvara að veður haldist þurrt.</p>

<p data-block-key="ihpzr">Um aldir höfðu Íslendingar engin önnur verkfæri en ljá, orf og hrífu til að afla vetrarforðans. Víða var heyjað upp á gamla mátann fram yfir miðja síðustu öld, en nú eru gömlu handbrögðin sjaldséð í sveitum landsins. Missið ekki af þessu tækifæri til að komast í kynni við orf, ljá og hrífur og að taka þannig virkan þátt í heyönnum á Árbæjarsafni. Athugið að heyannir geta fallið niður ef veður er óhagstætt. Dagskráin stendur frá klukkan 13-16 en safnið er opið 10 -17. Ókeypis aðgangur fyrir börn, öryrkja og menningarkortshafa. Öll velkomin!</p>