Hinsegin fána­saga - Uppistand Sindra Sparkle á Alþjóð­legum degi gegn fordómum í garð hinsegin fólks

Hinsegin fánasaga - Uppistand Sindra Sparkle á Alþjóðlegum degi gegn fordómum í garð hinsegin fólks

Verið hjartanlega velkomin á uppistand um hinsegin fánasögu með Sindra Sparkle. Uppistandið fer fram á Árbæjarsafni sunnudaginn þann 17. maí kl. 15-16 í tilefni af Alþjóðlegum degi gegn fordómum í garð hinsegin fólks og Alþjóðlega safnadeginum. Ókeypis inn og öll velkomin!

Sindri “Sparkle” Freyja er grínisti, rithöfundur, leikkona, grafískur hönnuður og margt annað. Seinustu árin hefur hán byggt feril sinn í kringum uppistands- og dragsenur Reykjavíkur. Þrátt fyrir það er hán ennþá aðallega þekkt fyrir að birtast nakið á sjónvarpsskjám þjóðarinar fyrir nokkrum árum. Hán er einnig einn helsti sérfræðingur heims í sögu hinsegin fána. Hán hefur túrað sýningum sínum erlendis og unnið fjölmörg verðlaun, þar með talið Nordic Fringe Network verðlaunin frá NFN og Rising star verðlaunin frá Reykjavík Fringe Festival. Borgarsögusafn Reykjavíkur hlaut regnbogavottun árið 2022. https://reykjavik.is/regnbogavottun-reykjavikur Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur). Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins. Öll bílastæði ókeypis.