Hjarta­smiðja á Menn­ing­arnótt

Hjartasmiðja á Menningarnótt

Í tilefni af Menningarnótt verður skapandi hjartasmiðja fyrir börn og fjölskyldur 22. ágúst kl. 13-21. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin.

Smiðjan er opin og sveigjanleg – komið þegar ykkur hentar og takið þátt á ykkar hraða. Viðburðurinn er hluti af fjölbreyttri dagskrá Borgarsögusafns á Menningarnótt. Aðgengi er gott á Ljósmyndasafninu og leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið.