Höfuðkransanámskeið - Skráning nauðsynleg

Sunnudaginn 21. júní kl. 13:00–16:00 verður haldið höfuðkransanámskeið á Árbæjarsafni undir leiðsögn Blómdísar, blómahönnuðar með yfir þrjátíu ára reynslu í faginu. Skráning er nauðsynleg.
Þátttakendur fá tækifæri til að búa til sinn eigin blómakrans, en allt efni og verkfæri verða á staðnum. Námskeiðið kostar 3.100 krónur, sem greiddar eru á staðnum og skráning er nauðsynleg. Vinsamlegast skráið ykkur hér: https://outlook.office.com/book/vidburdir_borgarsogusafn@reykjavik.is/?ismsaljsauthenabled Vinsamlegast athugið að skráningu lýkur föstudaginn, 19. júní. Námskeiðið er haldið í tilefni Jónsmessu, sem á sér djúpar rætur í fornri þjóðtrú á Norðurlöndum. Í gegnum aldirnar hefur þessi tími verið tengdur við náttúruöfl, dulræna atburði og töframátt jurta og blóma. Verið velkomin! Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur). Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins. Öll bílastæði eru ókeypis.