Húsaveisla - 50 ára afmælisfögnuður evrópska byggingararfsársins

Í tilefni af 50 ára afmæli Evrópska byggingararfsársins bjóðum við til skemmtilegrar og fróðlegrar Húsaveislu á Árbæjarsafni sunnudaginn 8. júní kl. 13-16. Verið öll velkomin!
Dagskrá: 14:00-15:00 – Sérstök leiðsögn um húsin á safnsvæðinu út frá byggingarlegu sjónarmiði. 13:00-16:00 – Fjölskylduratleikur um hús Árbæjarsafns – Alma Sigurðardóttir, arkitekt og sérfræðingur í varðveislu bygginga. 13:00-16:00 – Opið í Húsverndarstofu: Ráðgjöf um endurgerð gamalla húsa – Bjarki Þór Wium Sveinsson, smiður og nemi í arkitektúr og Magnús Skúlason, arkitekt. 13:00-16:00 – Kynning á rannsóknum safnsins á sviði húsverndar – Drífa Kristín Þrastardóttir, verkefnastjóri húsverndar á Borgarsögusafni 13:00-16:00 – Hús í hæfum höndum: Hægt verður að fylgjast með smiði dytta að húsi. Í ár eru 50 ár liðin frá Evrópska byggingararfsárinu 1975. Byggingararfsárið var mikil hvatning fyrir þau sem unnu að húsverndarmálum á Íslandi og segja má að það hafi markað þáttaskil í baráttu fyrir verndun byggingararfs eins og almennt er talið að hafið orðið í Evrópu. Borgarsögusafn gegnir margþættu hlutverki á sviði húsverndar og varðveislu byggingararfs Reykjavíkur. Á Árbæjarsafni eru varðveitt hús með sögulegt og listrænt gildi sem endurspegla þróun byggðar og lífshætti í borginni. Safnið rannsakar einnig byggðasögu og byggingararf borgarinnar og heldur húsaskrá með upplýsingum um sögu og varðveislumat húsa í borginni. Afrakstur húsverndarrannsóknanna er birtur í byggða- og húsakönnunum sem eru gefnar út í skýrsluröð safnsins. Borgarsögusafn vinnur náið með Minjastofnun Íslands og Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar að málum sem varða bæði húsvernd og fornleifavernd, skipulag og framkvæmdir í borginni. Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur). Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins. Öll bílastæði eru ókeypis.