Hvar býr litla gula kisan?

Hvar býr litla gula kisan?

Komdu og leitaðu að litlu gulu kisunni! Á Landnámssýningunni í Aðalstræti býr forvitin lítil gul kisa sem elskar að skoða sig um. Hún klifrar, felur sig og heimsækir alla króka og kima sýningarinnar. Fylgstu vel með og reyndu að finna hana á leiðinni. Kannski finnur þú líka hvar hún á heima! 🐾✨ 🍂 Viðburðurinn er hluti af haustfrísdagskrá Borgarsögusafns. Frítt er inn á alla sýningarstaði safnsins fyrir fullorðna í fylgd barna dagana 22.-26. október.

Aðgengi er gott í Aðalstræti. Athugið samt að það er lítil lýsing inni í sýningarsal hjá rústinni og þar er gólfið ójafnt. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næstu stoppustöðvar heita MR og Ráðhúsið (2-5 mín. gangur).