Jóns­messu­hátíð / Midsommar

Jónsmessuhátíð / Midsommar

Komdu og fagnaðu svensk midsommar / Jónsmessu með okkur! Árbæjarsafn í samstarfi við Sænska Félagið á Íslandi og Þjóðdansafélag Reykjavíkur efna til fjölskylduhátíðar með miðsumarsþema! Frítt inn fyrir öll þau sem koma í þjóðbúning, börn að 17 ára aldri, öryrkja og menningarkortshafa.

Fyrir ykkur sem viljið hjálpa til við að skreyta stöngina byrjum við kl. 11 og miðsumarstöngin verður reist klukkan 12. Hátíðin hefst kl. 12, á því að miðsumarstöngin er reist. Í framhaldinu verða dansaðir þjóðdansar samanber hefðbundnir sænskir hringdansar þar sem við syngjum Små Grodorna og fleira. Á milli dansatriða verða flutt lög eftir sænsk-hollenska söngvarann Cornelius Vreeswijk og meðlimir í Þjóðdansafélagi Reykjavíkur sýna íslensk danspor. Dagskráin verður svo endurtekin kl. 15. Einnig verður hægt að búa til sinn eigin höfuðkrans á námskeiði með Blómdísi og jóndísi blómahönnuðum, en það er nauðsynlegt að skrá sig á það fyrirfram. Námskeiðið kostar 3.000 kr. Skráningarform má finna á vefsíðu Borgarsögusafns. Verið hjartanlega velkomin! Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur). Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins. Öll bílastæði eru ókeypis.