Jónsmessuhátíð / Midsommar

Komdu og fagnaðu svensk midsommar / Jónsmessu með okkur sunnudaginn 21. júní! Árbæjarsafn efnir til fjölskylduhátíðar með miðsumarsþema í samstarfi við Sænska Félagið á Íslandi og Þjóðdansafélag Reykjavíkur! Frítt inn fyrir öll þau sem koma í þjóðbúning, börn að 17 ára aldri, öryrkja og menningarkortshafa.
Fyrir þau sem vilja hjálpa til við að skreyta stöngina byrjum við kl. 12 og miðsumarstöngin verður reist klukkan 14. Hátíðin hefst formlega kl. 14, á því að miðsumarstöngin er reist. Í framhaldinu verða dansaðir þjóðdansar samanber hefðbundnir sænskir hringdansar þar sem við syngjum Små Grodorna og fleira. Einnig verða spiluð lög eftir sænsk-hollenska söngvarann Cornelis Vreeswijk. Þá munu meðlimir í Þjóðdansafélagi Reykjavíkur sýna íslensk danspor. Sama dag kl. 13-16 verður hægt að búa til sinn eigin höfuðkrans á námskeiði með Blómdísi blómahönnuði, en það er nauðsynlegt að skrá sig á námskeiðið fyrirfram. Námskeiðið kostar 3.100 kr. Skráning hér: https://outlook.office.com/owa/calendar/vidburdir_borgarsogusafn@reykjavik.is/bookings/?ismsaljsauthenabled Verið hjartanlega velkomin! Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur). Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins. Öll bílastæði eru ókeypis.