Jóns­messu­næt­ur­ganga með Stefáni Páls­syni

Jónsmessunæturganga með Stefáni Pálssyni

Á Jónsmessu, þriðjudaginn 23. júní kl. 21:30 býður Borgarsögusafn upp á fróðlega náttúrugöngu frá Árbæjarsafni og í Elliðaárdal. Stefán Pálsson, sagnfræðingur leiðir gönguna.

Gengið verður frá Árbæjarsafni og um söguslóðir í Elliðaárdal og landi Ártúns, staldrað við á völdum stöðum, sagðar sögur, fjallað um Norðmenn á skíðum, góðglaða skógræktarmenn og hörðustu nágrannaerjur seinni alda! Hist er við inngang Árbæjarsafns en gangan tekur um eina og hálfa til tvær klukkustundir. Þátttaka er endurgjaldslaus. Öll velkomin! Athugið að gengið verður um ójafna jörð og brattar hlíðar. Klæðist eftir veðri.