Komdu að leika!
![Komdu að leika!](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fhvirfill.reykjavik.is%2Fmedia%2Fimages%2F449184108_921807.1b664e91.fill-1920x980-c100.format-jpeg.jpg&w=3840&q=75)
Um Verslunarmannahelgina verður venju samkvæmt blásið til fjölbreyttrar leikjadagskrár á Árbæjarsafni.
Frá kl. 13, bæði sunnudaginn 4. ágúst og mánudaginn 5. ágúst, geta gestir keppt í pokahlaupi, skjaldborgarleik og reiptogi, svo nokkuð sé nefnt. Á safninu er fjölbreytt úrval af útileikföngum sem krökkum býðst að nota að vild, svo sem húla-hringir, snú-snú, kubb og stultur og síðast en ekki síst flottir kassabílar. Þá verður hægt að grípa í badmintonspaða og á gamaldags róluvelli eru sandkassi og leikföng.