Komdu að leika! - Útileikir

Um verslunarmannahelgina verður venju samkvæmt blásið til fjölbreyttrar leikjadagskrár á Árbæjarsafni. Frá kl. 13, bæði sunnudaginn 2. ágúst og mánudaginn 3. ágúst, geta tekið þátt í skemmtilegum útileikjum.
Á safninu er fjölbreytt úrval af útileikföngum sem krökkum býðst að nota að vild, sem og gamaldags róluvöllur með sandkassa og leikföng. Frítt inn fyrir börn, öryrkja og menningarkortshafa. Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur). Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins. Öll bílastæði eru ókeypis.