Komdu og sjáðu hvernig net verður til!

Hvernig verður fiskinet eiginlega til? Hvaða áhöld eru notuð og hvernig? Milli klukkan 11 og 13, fimmtudaginn 22. október verður haldin netasmiðja á Sjóminjasafninu í Reykjavík. Það verður hægt að sjá net verða til og kannski fá að prófa að hnýta. Einnig verður í boði að búa til sjávardýr og hengja í netið. Smiðjan verður í sal á fyrstu hæð (Bryggjusalur) og er opin og sveigjanleg - þið komið þegar ykkur hentar og takið þátt á ykkar hraða. 🍂Viðburðurinn er hluti af haustfrísdagskrá Borgarsögusafns. Frítt er inn á alla sýningarstaði safnsins fyrir fullorðna í fylgd barna dagana 22.-26. október.
Aðgengi fyrir hreyfihamlaða er gott á Sjóminjasafninu, sérstaklega við inngang Grandagarðsmegin. Lyfta er á milli hæða. Leiðsögu-hundar eru velkomnir í safnið. Verið öll velkomin!