Kúmentínsla með Björk Bjarna­dóttur

Kúmentínsla með Björk Bjarnadóttur

Kúmenfræin í Viðey  eru orðin fullþroskuð til að tína og þér er boðið í fræðandi uppskeruferð. Ferjan fer frá Skarfabakka  klukkan 18:00. Björk Bjarnadóttur, umhverfis- og þjóðfræðingur tekur á móti gestum við kirkjuna.

Björk leiðir tínsluna og upplýsir um meðferð og notkun kúmens, ásamt því að segja sögu kúmensins og fleiru sem tengist Viðey. Upphaf kúmenræktunar má rekja til aftur til Skúla Magnúsar landfógeta sem hóf ýmsar ræktunartilraunir í Viðey upp úr miðri átjándu öld, þó með misjöfnum árangri. Viðeyjarkúmenið vex þar enn og þykir smærra og sætara en annað kúmen en það eru ekki allir sem vita að þetta litla fræ hefur þó nokkurn lækningamátt og ekki skemmir fyrir hversu bragðgott það er. Gestir eru hvattir til að taka með sér taupoka, lítinn hníf  eða skæri . Siglt verður frá Skarfabakka kl. 18:00. Mælt er með að kaupa miða fyrir fram í ferjuna á heimasíðu Eldingar. Björk tekur á móti gestum göngunnar við kirkjuna úti í Viðey. Gangan sjálf tekur um 1,5-2 klst. Eftir það taka gestir ferjuna til baka á þeim tíma sem þeim hentar. Þátttaka í göngunni er gestum að kostnaðarlausu en greiða þarf í ferjuna. Gjald í ferjuna fram og til baka eru 2.300 kr. fyrir fullorðna og 1.150 kr. fyrir börn 7 – 17 ára í fylgd fullorðinna. Börn 6 ára og yngri sigla frítt (ath. aðeins er hægt að bóka þrjú börn fyrir hvern fullorðinn fylgdarmann.) Við minnum á að handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og handhafar Gestakortsins (Citycard.is) sigla frítt. Viðey er hluti af Borgarsögusafni Reykjavíkur  - Eitt safn á fimm frábærum stöðum.