Kúmentínsla með Björk Bjarna­dóttur

Kúmentínsla með Björk Bjarnadóttur

Kúmenfræin í Viðey eru orðin fullþroskuð til að tína og þér er boðið í fræðandi uppskeruferð þann 15. ágúst kl. 13:15. Björk Bjarnadóttir, umhverfis- og þjóðfræðingur leiðir tínsluna og segir gestum frá sögu kúmensins og fleiru sem tengist Viðey. Vinsamlegast kaupið miða í ferjuna fyrirfram á elding.is Gestir eru hvattir til að taka með sér taupoka, lítinn hníf eða skæri. Siglt verður frá Skarfabakka kl. 13:15. Björk tekur á móti gestum göngunnar við kirkjuna úti í Viðey. Gangan sjálf tekur um 1,5-2 klst. Ferjan siglir tilbaka að göngunni lokinni.

Vinsamlegast kaupið miða fyrirfram í ferjuna á heimasíðu Eldingar: https://elding.is/is/videyjarferjan-fra-skarfabakka Þátttaka í göngunni er gestum að kostnaðarlausu en greiða þarf í ferjuna. Við minnum á að handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og handhafar Gestakortsins (Citycard.is) sigla frítt. Upphaf kúmenræktunar má rekja til aftur til Skúla Magnúsar landfógeta sem hóf ýmsar ræktunartilraunir í Viðey upp úr miðri átjándu öld, þó með misjöfnum árangri. Viðeyjarkúmenið vex þar enn og þykir smærra og sætara en annað kúmen en það eru ekki allir sem vita að þetta litla fræ hefur þó nokkurn lækningamátt og ekki skemmir fyrir hversu bragðgott það er.