Kven­rétt­inda­dag­urinn - Frítt inn fyrir konur og kvár!

Kvenréttindadagurinn - Frítt inn fyrir konur og kvár!

Á Kvenréttindadaginn, þann 19. júní, býður Árbæjarsafn konum og kvár ókeypis aðgang að safninu í tilefni dagsins.

Þennan dag árið 1915 fengu íslenskar konur 40 ára og eldri kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Í tilefni þeirra 111 ára sem hafa síðan liðið, verður leiðsögn um safnsvæðið tileinkuð sögu kvenna kl. 14:00. Kvenréttindadagurinn minnir okkur á þann kraft og þrautseigju sem konur hafa sýnt í gegnum tíðina í baráttunni fyrir mannréttindum, kosningarétti, menntun, atvinnu og virðingu. Á Íslandi fengu konur kosningarétt árið 1915, og síðan þá hefur baráttan haldið áfram – fyrir launajafnrétti, gegn kynbundnu ofbeldi og fyrir fjölbreyttari sýn á kyn og kyngervi. Þessi dagur er tækifæri til að minnast sögunnar, heiðra brautryðjendur og hvetja til áframhaldandi breytinga. Verið hjartanlega velkomin! Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur). Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins. Öll bílastæði eru ókeypis.