Kvöldganga | Frá þvottalaugum í sundlaugar - Íslensk sundlaugamenning á skrá UNESCO

Verið velkomin í ókeypis göngu um íslenska sundlaugamenningu fimmtudaginn 2. júlí kl. 20:00.
Sigurlaug Dagsdóttir, þjóðfræðingur á Þjóðminjasafni Íslands og verkefnastýra Lifandi hefða, yfirlitsskrár um lifandi hefðir á Íslandi, mun leiða gönguna, ásamt Helgu Maureen Gylfadóttur, sagnfræðingi og deildarstjóra miðlunar, safnfræðslu og viðburða á Borgarsögusafni Reykjavíkur. Sundlaugamenning á Íslandi er einstök á heimsvísu. Árið 2023 var ákveðið að fara af stað með fyrstu sjálfstæðu tilnefningu Íslands á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf mannkyns. Í desember 2025 var sundlaugamenning á Íslandi samþykkt inn á lista UNESCO. Sigurlaug mun tala um sögu og sérstöðu þessarar menningar og eins tilnefningarferlið sjálft og svara spurningum um ferlið og þessa viðurkenningu. Þá mun Helga Maureen fjalla um sögu þvottalauganna. Gangan hefst við gömlu þvottalaugarnar í Laugardalnum og fer fram á íslensku. Gangan tekur um 1,5 klukkustund. Gangan er hluti af viðburðaröðinni Kvöldgöngur en að henni standa Borgarsögusafn, Borgarbókasafn, Listasafn Reykjavíkur og Reykjavík Bókmenntaborg Unesco. Göngurnar fara fram á fimmtudögum yfir sumarmánuðina. Kvöldgöngurnar eru gjaldfrjálsar og öll eru hjartanlega velkomin.