Kvöldganga I Gengið um Aðalstræti - Kaupstaðaréttindi í 240 ár

Í ár fagnar Reykjavíkurborg 240 ára afmæli og af því tilefni býður Borgarsögusafn Reykjavíkur uppá sögugöngu um Aðalstræti, fyrstu götu bæjarins. Guðbrandur Benediktsson og Helga Maureen Gylfadóttir, sagnfræðingar leiða gönguna og hefst hún kl. 20 við Borgarbóksafnið í Grófinni, Tryggvagötu 15. Talað mál íslenska. Öll velkomin og er þátttaka ókeypis.
Aðalstræti er ein elsta og merkasta gata Reykjavíkur og í raun einskonar tímalína Reykjavíkur. Litið verður inn hjá fyrstu íbúum í Aðalstræti og sagan rakin allt fram fram til dagsins í dag. Landnáms-sýningin í Aðalstræti 16 verður heimsótt og endað hjá Silla og Valda í Aðalstræti 10. Og að sjálfsögðu syngjum við afmælissönginn Reykjavík til heiðurs! Kvöldgöngur eru viðburðaröð sem Borgarsögusafn, Borgarbókasafn og Listasafn Reykjavíkur standa fyrir. Göngurnar fara fram á fimmtudagskvöldum yfir sumarmánuðina. Upplýsingar um allar göngurnar er að finna á vef Borgarbókasafnsins og á Facebooksíðunni, Kvöldgöngur.