Land­náms­sýn­ingin Aðalstræti 10 og 16 - Leið­sögn á ensku

Landnámssýningin Aðalstræti 10 og 16 - Leiðsögn á ensku

Verið velkomin í leiðsögn á ensku um Landnámssýninguna Aðalstræti 10 og 16. Leiðsagnirnar fara fram á virkum dögum kl. 11 frá 1. júní til 21. ágúst.

Leiðsögnin hefst á Landnámssýningunni Aðalstræti 16 en þar blasir við gestum rúst skála frá 10. öld sem fannst árið 2001. Gestir verða leiddir um ævintýralega og margslungna sögu Reykjavíkur allt frá því að landnámsfólkið dreif hingað að og til dagsins í dag. Svör við spurningum um hvernig Reykjavík leit út við landnám og hvað allt þetta fólk var að bardúsa hér fyrstu árhundruðin verða afhjúpuð auk fjölda annarra. Í maí 2022 var sýningarsvæðið stækkað og teygir sýningin sig nú neðanjarðar frá Landnámssýningunni yfir í elsta hús Kvosarinnar, sem er Aðalstræti 10. Í nýja sýningarhlutanum fylgjum við þróun Reykjavíkur frá þorpi yfir í kaupstað, þaðan í höfuðstað og síðan Reykjavíkurbæ sem verður að Reykjavíkurborg – höfuðstað hins bjarta norðurs. Hoppaðu um borð í tímavélina með okkur og við lofum því að þú verðir margs vísari um sögu Reykjavíkur. Aðgengi er gott í Aðalstræti. Athugið þó að það er fremur lítil lýsing inni í sýningarsal hjá skálarústinni og þar er gólfið ójafnt á köflum. Leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið.