Leiðsögn á albönsku

Borgarsögusafn býður upp á leiðsögn á albönsku sunnudaginn 19. apríl, kl. 14:00-15:00 í Sjóminjasafninu í Reykjavík. Ana Shahini, kennari og bókasafnsfræðingur, sér um leiðsögnina.
Leiðsögnin fjallar um sýningu safnsins Fiskur & fólk - sjósókn í 150 ár og er bæði fræðandi og skemmtileg fyrir alla aldurshópa. Leiðsögnin er ókeypis og öll þau sem tala albönsku eru boðin hjartanlega velkomin. Viðburðurinn er unnin í samstarfi við Móðurmál – samtök um tvítyngi. Aðgengi er gott á Sjóminjasafninu. Safnið er á tveimur hæðum og það er lyfta er á milli hæða. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagn, leið 14, stoppar nálægt safninu. Ókeypis bílastæði.