Leið­sögn á arab­ísku

Leiðsögn á arabísku

Borgarsögusafn býður upp á leiðsögn á arabísku um Aðalstræti, laugardaginn 16. maí, kl. 14:00-15:00. Mouna Nasr segir frá sýningunni á arabísku.

Í Aðalstræti 10 og 16 er sýning um hvernig Reykjavík hefur breyst frá landnámi til dagsins í dag. Leiðsögnin byrjar í Aðalstræti 16 þar sem er rúst af húsi frá 10. öld og sýning um líf fyrstu íbúa Reykjavíkur. Leiðsögnin heldur áfram í elsta húsi í miðbæ Reykjavíkur, Aðalstræti 10. Þar er sýning um þróun Reykjavíkur til dagsins í dag. Leiðsögnin er ókeypis og öll þau sem tala arabísku eru boðin hjartanlega velkomin. Viðburðurinn er unnin í samstarfi við Móðurmál – samtök um tvítyngi. Aðgengi er gott í Aðalstræti. Athugið þó að það er lítil lýsing inni í sýningarsal hjá rústinni og þar er gólfið ójafnt. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næstu stoppistöðvar heita MR og Ráðhúsið (2-5 mín. gangur).