Leið­sögn á Árbæj­arsafni

Leiðsögn á Árbæjarsafni

Leiðsögumaður fer með gesti í öll helstu hús Árbæjarsafns og segir frá sögu þeirra. Leiðsögnin fer að mestu fram á ensku og tekur rúma klukkastund.

Árbæjarsafn er útisafn sem var stofnað árið 1957 en auk Árbæjar eru þar yfir tuttugu hús, sem mynda torg, þorp og sveit. Í Árbæjarsafni er leitast við að gefa hugmynd um byggingalist og lifnaðarhætti í Reykjavík á 19. og 20. öld. Hvert og eitt hús geymir annaðhvort sjálfstæða sögusýningu eða þá að þar er sýnt dæmigert heimili frá ákveðnu tímabili. Á safninu má einnig sjá gamaldags verkstæði ýmiskonar þar sem sjá má dæmigerða aðstöðu, tækni og tól.