Leið­sögn á ensku: Jól í Reykjavík - Þá og nú

Leiðsögn á ensku: Jól í Reykjavík - Þá og nú

Dagana 3., 4., 10., 11., 17. og 18. desember fara fram jólaleiðsagnir um Aðalstræti 10 og 16 á ensku. Leiðsögnin hefst kl. 11:00. Allir enskumælandi eru velkomnir! Vinsamlegast athugið að lágmarksfjöldi gesta í leiðsögnina eru 2.

Aðgengi er gott í Aðalstræti. Athugið þó að það er fremur lítil lýsing inni í sýningarsal hjá skálarústinni og þar er gólfið ójafnt á köflum. Leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið.