Leiðsögn á pólsku

Borgarsögusafn býður upp á leiðsögn á pólsku sunnudaginn 22. mars, kl. 14:00-15:00 í Sjóminjasafninu í Reykjavík. Marta Wieczorek, Reykvíkingur ársins og aðstoðarskólastjóri Pólska skólans í Reykjavík, sér um leiðsögnina. Leiðsögnin fjallar um sýningu safnsins Fiskur & fólk - sjósókn í 150 ár og er bæði fræðandi og skemmtileg fyrir alla aldurshópa. Leiðsögnin er ókeypis og öll þau sem tala pólsku eru boðin hjartanlega velkomin.
Aðgengi: Safnið er á tveimur hæðum og aðgengi er gott, sérstaklega við inngang Grandagarðsmegin. Lyfta er á milli hæða. Hjálparhundar eru velkomnir.