Leið­sögn á pólsku

Leiðsögn á pólsku

Borgarsögusafn býður upp á leiðsögn á pólsku um Ljósmyndasafnið. Leiðsögnin verður sunnudaginn 11. október kl. 14:00-15:00. Marta Wieczorek, aðstoðarskólastjóri Pólska skólans í Reykjavík, sér um leiðsögnina.

Leiðsögnin verður um sýninguna "Á vettvangi" með myndum eftir Ólaf K. Magnússon. Hann var blaðaljósmyndari og byrjaði að vinna hjá Morgunblaðinu árið 1947. Á sýningunni eru myndir frá 1947-1975 sem sýna miðbæ Reykjavíkur eins og hann var þá. Leiðsögnin er ókeypis og öll þau sem tala pólsku eru boðin hjartanlega velkomin. Aðgengi er gott á Ljósmyndasafninu og leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næstu stoppistöðvar heita Hafnarhús, Lækjartorg, Ráðhúsið (2-5 mín. gangur).