Leið­sögn ljós­myndara á loka­degi sýningar

Leiðsögn ljósmyndara á lokadegi sýningar

Á lokadegi sýningarinnar Hjartaþræðir, sunnudaginn 6. september kl. 15, býður Þórdís Erla Ágústsdóttir gestum í sérstaka leiðsögn um sýninguna. Ókeypis er á spjallið og öll velkomin! Talað mál íslenska ❤️ Í ljósmyndum sínum leitast Þórdís Erla við að fanga það óáþreifanlega í daglegu lífi fólks inn á heimilum þess og á öðrum stöðum sem eru því mikilvægir.

Aðgengi er gott á Ljósmyndasafninu Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næstu stoppistöðvar heita Hafnarhús, Lækjartorg, Ráðhúsið (2-5 mín. gangur). Bílastæði eru við safnið og í nærliggjandi bílastæðahúsum.