Leiðsögn um Landnámssýninguna með Orra Vésteinssyni

Verið velkomin á Landnámssýninguna þann 9. maí kl. 13-14. Þá mun Orri Vésteinsson, prófessor í fornleifafræði við Háskóla Íslands leiða gesti um sýninguna í tilefni af 20 vetra afmæli hennar. Ókeypis inn og öll velkomin!
Aðgengi er gott í Aðalstræti. Athugið þó að það er lítil lýsing inni í sýningarsal hjá rústinni og þar er gólfið ójafnt. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næstu stoppistöðvar heita MR og Ráðhúsið (2-5 mín. gangur).